top of page

Við Daníel Starrason, ljósmyndari og góður vinur, förum reglulega saman í ljósmyndaferðir. Þetta eru afar skemmtilegar ferðir og mjög lærdómsríkar fyrir mig. Ég læri margt af Daníel, sem er frábær ljósmyndari, finn stílinn minn í landslagsljósmyndun og svo læri ég á landið okkar.


Tveir í kulda. Undirritaður verr haldinn, í tveimur lopapeysum og úlpu


Um daginn var ákveðið að fara austur á bóginn, vera ekki að stoppa mikið fyrr en komið væri í Kelduhverfi. Skyldustopp er í Fjallahöfn. Fallegt mynstur má finna í fjörugrjóti, þar er kolsvartur sandur og fallegt útsýni í austurátt.



Valþjófsstaðafjall í fjarska


Þar eru oftast selir og það var ekkert öðruvísi í þetta skiptið. 4 landselir tóku á móti okkur. Dásamlega forvitin og skemmtileg dýr.


Landselur


Eftir gott stopp var haldið áfram. Að þessu sinni var ekki stoppað í hinni stórskemmtilegu verslun í Ásbyrgi. Þar er gaman að stoppa, því m.a. eru seldir geisladiskar þar. Alveg til fyrirmyndar!

Við ákváðum að fara austurfyrir Jökulsá og keyra suður með henni þeim megin. Snjór var á vegi en gamli góði Blazer mallaði þetta örugglega. Fyrst stoppuðum við við Hafragilsfoss. Stórkostlega fallegt umhverfi í vetrarblámanum.



Hafragilsfoss í Jökulsá á Fjöllum

Því næst héldum við að Dettifossi, konungi íslenskra fossa. Við Daníel erum mikið fyrir að mynda í ljósaskiptunum og á kvöldin. Við hittum á góðan tíma sólarhringsins. Falleg ljósaskiptin þennan dag. Reyndar erum við sammála um að Dettifoss njóti sín e.t.v. betur þegar myndir eru teknar á miklum lokahraða, þannig að vatnið “frjósi” á myndinni. Þannig upplifir maður frekar kraft fossins. Eins og má t.d. sjá á þessum gömlu myndum:




Dettifoss úfinn


Það var ekki mikið vatn í Jökulsá núna, en samt ótrúlega kraftmikil upplifun að vera þarna. Þar sem birta var orðin lítil þurftum við nær eingöngu að taka dæmigerðar mjúkar fossamyndir, þar sem lokahraði er lítill og vatnið myndar mjúkar línur.




Eftir góðan kaffisopa og nestisát var haldið áfram í suðurátt. Drottningin sjálf, Herðubreið, dróg okkur í þá áttina. Mögnuð áhrif sem það fjall hefur á mann, jafnvel þótt maður sé í órafjarlægð..



Herðubreið, mynd tekin frá Dettifossi með 400mm linsu


Skýjahulan hvarf hratt og stjörnuhimininn birtist. Við vissum að tunglið myndi ekki skína þetta kvöld. Við vorum glaðir með það, enda vildum við enga ljósmengun frá því. Og engin norðurljós voru heldur til að byrja með. Við vorum líka glaðir með það, því þau skemma svolítið stjörnumyndir. Amk gera manni erfiðara fyrir. Stoppað var við Hrossaborg á Mývatnsöræfum. Gengum við þar um svæðið í kolsvarta myrkri, logni, mátulegu frosti. Þessi tími var stórkostlegur.




Ég hef undanfarið loksins viðurkennt fyrir sjálfum mér að ég sé hálfgerður einfari. Mér líður best einn eða með fáa í kring um mig, helst fólk sem ég þekki vel. Það var því hálfgerð helgistund fyrir mér að vera með Danna í þögninni þarna uppi á öræfunum. Gjörsamlega magnað.

Eftir meira kaffi var haldið í Mývatnssveitina sífögru. Námaskarð gaf lítið þetta kvöldið og því héldum við í átt að Hverfjalli. Þar einbeittum við okkur að því að fanga fagurt landslagið og leyfa smá norðurljósum að flækjast með :) Ég hef lítið tekið af dæmigerðum vetrarbrautar- og norðurljósamyndum. Hef einhvernveginn ekki haft áhuga á þessum fyrirbærum sem slíkum á myndum, nema ef þau eru í aukahlutverki á myndinni. Mér finnst núna gaman að gera svoleiðis tilraunir



Hverfjall


Maður hefði auðvitað getað verið fram á morgun á þessum stað, næg voru myndefnin. En komið var fram yfir miðnættið og karlarnir verið á ferð í 13-14 tíma. Því keyrðum við áfram en urðum að stoppa aðeins við Másvatn.



Norðurljós við Másvatn


Síðasta stopp var við Goðafoss, hinn geysilega fallega foss í Skjálfandafljóti. Þar voru aðstæður nokkuð erfiðar og einbeitingin kannski aðeins minni en í upphafi ferðar. En ég var þó heppinn að ná einu góðu stjörnuhrapi inn á mynd.



Stjörnuhrap við Goðafoss

Dásamlegt að koma eftir einhverja 15 klukkutíma og langa útiveru.


Kíkið endilega á Daníel á Instagram. Frábærar myndirnar hans þar

 
 
 

Written in March 2018


We in Akureyri have had a good visitor. The guest is Bearded Seal, but that species does not belong to the Icelandic fauna. The Bearded Seal is a vagrant here, it is likely that it came here from Greenland. Bearded Seals mainly eat shellfish and there is probably something good to eat here in the fjord, because several Bearded Seals come here every year.




A Harbour Seal watched me while filming. Nice to see the difference between these species. Hopefully the seals will stay here as long as possible because they are truly eye-catching and fun to have here in town.


The music is by the great Jazz composer and bassist, Tómas R. Einarsson. Eyþór Gunnarsson and Tómas play the song "Kristín" from the album "Innst inni". Check out Tómas' Spotify Channel or buy in his albums. They are amazing!


It is necessary to watch the video and listen to the music by selecting HD.

 
 
 

Written in March 2018


When you get an exciting message, you forget everything else.


It was quite early this morning, after I had followed my daughter to school and shovelled the snow from the steps in front of my home. I had the morning coffee in the cup. Brought the phone into the bathroom, just to read the news on my way to the shower. Then I got a message from my friend Lára Sóley Jóhannsdóttir telling me about harbor seals downtown. I got dressed in 5 seconds, left my coffee in the bathroom, put the batteries in the camera and drone and drove downtown. These harbor seals are so curious and fun.


I'm so grateful to my cousin Tómas R for allowing me to use his music for my videos. His music is brilliant. The song Hollíblús is from the album Laxness, which was released in 2012. Davíð Þór, Ómar Guðjóns and Matthías Hemstock play with Tómas.






 
 
 
bottom of page